02október

Fyrstu óvissuferđinni lokiđ!

jonatan-clean skrifar:
Jæja stelpur, þá er fyrsta óvissuferðin okkar búin! Að mínu mati heppnaðist hún bara stórkostlega og var bara frábær í alla staði! Þó svo að við hefðum lent í svona smá óvissum inni í óvissuferðinni, eins og að finna ekki bústaðinn og villast á leið í rafting og eitthvað, þá var það bara gaman þrátt fyrir allt :D

En mig langar svona endilega heyra hvað ykkur fannst um þetta, hvað var það besta, hvað hefði mátt betur fara og svona.. svona smá punkta fyrir þá sem plana eitthvað svona næst og hrós fyrir okkur þær sem plönuðum þetta ;) Skrifið það bara í komment!

Já og eitt í viðbót, þá vorum við þó nokkuð margar með myndavélar á lofti, og þó svo að þið setjið myndirnar ekki endilega hérna inná bloggið, þá megiði endilega segja í kommentum hvert þið setjið þessar flottu myndir af þessum líka föngulegu telpum :P

Samt svona fyrir aðra vandamenn sem hafa það að gamni sínu að skoða þessa skemmtilegu síðu okkar stelpna, þá var ferðin í stuttum orðum svona:

    -  Lögðum af stað um hálf 4 frá skólanum
    -  Fórum í magadans og lapdans hjá Jósý
    -  Fórum þaðan niður á tjörn og gáfum öndunum brauð og höfðum hópsöng
    -  Hittum þar reyndar eitthvað fólk sem var í ratleik, ein önnur óvissa í óvissunni
    -  Lyngdalsheiðin var brunuð á 120 km hraða upp í Úthlíð þar sem leiðin tók 4 klukkutíma!
    -  (frá því að við lögðum af stað frá Rvk. og fundum bústaðinn eftir miiiiklar leitir)
    -  Hjálpartækjakynning um kvöldið þar sem verslað var og verslað og auðvitað drukkinn bjór með
    -  Vaknað snemma í morgunsárið og lagt af stað um 1 leytið í RAFTING!
    -  Villtumst á leiðinni og komum tæpum klukkutíma og seint!
    -  Báturinn var nærri oltinn á einum stað!
    -  Galvaskar syntum við svo flestar í land, þannig við höfum synt í Hvítánni!

Allavega þakka ég fyrir mig stelpur mínar :*

En eitt hérna í bláendann, hvernig væri að fara að up-deita síðuna aðeins? Fara að breyta og bæta þarna um okkur allar, og finna nafn á Kristínu og bæta henni inn, fara að setja eitthvað skemmtilegt hérna inn, og fyrst og fremst eins og við Katrín vorum sammála um, að fara að virkja þetta blogg eitthvað betur?

Eeeendilega svarið í kommentunum góðu ;)

Clean-inn kveður :D
02. október 2008 klukkan 21:37
Jónatan
4 athugasemdir
22september

JĆJA !!

Jæja pjásur ! Það er að renna að þessu ..loksins! ;)

Við förum semsagt 12 í ferðina, sem er bara ansi flott og góð mæting (þótt auðvitað vildum við fá allar!) En stemmaraskvísurnar sem eru að fara næstkomandi föstudag í ÓVISSUNA ERU:

Freyja
Erla
Ragnheiður
Lísbet
Lena
Regína
Katrín
Kristín
Valdís
Jóhanna
Lára
Aníta Lísa

FERÐIN KOSTAR 13000 KRÓNUR ! BORGIÐ í siðasta lagi á fimmtudaginn því það er svoldið sem við verðum að leggja lokahönd á á þeim tíma!! Common girls !Látið okkur bara fá þetta i skolanum, erlu freyju eða ragnheiði :D

Okkur vantar 3 sem vilja keyra. Það þurfa 3 brummar að vera til staðar fyrir okkar flottu og stinnu rassa ;)!!!

FERÐIN !!

Við leggjum í hann klukkan 15:00 frá FVA. Komið bara í þægilegum fötum, samt ekkert druslulegum. Og þar mun ÓVISSAN hefjast.. ekki verður sagt meira um það :)

Það sem þarf að hafa í för er eftirfarandi : 
     
                      *Hlý föt
                      *sundföt (annars erum við allar svo nánar gætum alveg strípast um;))
                      * Aukaföt
                      *Peningur (kort)
                      *Snyrtidót 
                     *Fín föt                                     
*Áfengi fyrir okkur sem getum ekki lifað án þess ;)
                      * Ullarsokka
       *geisladisk ef þið eigið eitthverja partey diska
                      *Myndavélar (því auðvitað viljið þið eiga þetta á FILMU)
                      *Auka skó 
                      *OOG SÍÐAST en ekki síst GÓÐA SKAPIÐ ! ;)

Borgið á miðvikudaginn í siðasta lagi ! Til Erlu ,Freyju eða Ragnheiðar !! 



STUÐ OG STEMMINGAR kveðjur 

Erla, Freyja og Ragnheiður!:*
                       

22. september 2008 klukkan 15:38
Jónatan
26 athugasemdir
17september

ÓVISSUFERĐ !!

JÆJA STELPUR !! Það eru bara 8 dagar í þetta !

Allt er komið á hreint hjá okkur og er ferðin tilbúin og bíður bara eftir okkur þangað til 26.september ! ;)

Við þurfum að borga ýmislegt fyrir ferðina, og þurfum við að fá staðfestingu frá þeim sem ætla sér að koma. Í SÍÐASTA LAGI FYRIR MORGUNDAGINN.

Ferðin mun kosta í kringum 12000 kronur.(Fer auðvitað eftir hverjir eru hættir við að koma, því við það getur gjaldið hækkað eða lækkað) 

Við leggjum í hann 26. september og ráðið þið hvort þið viljið sofa eina eða tvær nætur. Þannig að JÁ, stelpur sem ætluðuð að hætta við óvissuna til að komast á skitið Septemberfest (meðan við okkar ferð, er þetta bara skitið), ÞIÐ KOMIST Á ÞAÐ. Annars pínum við engann, og ef þið veljið það þá bara hafi það þið ;) Vonumst til að sjá ykkur allar, því meiri gleði verður auðvitað því fleiri sem við erum pjöttlur ! :D Gerðum allt og allir áttu að komast þennan dag, þannig það er enginn afsökun ..

KEMUR EFTIR HELGI HVAÐ ÞARF MEÐ Í FERÐINA OG HVER KOSTNAÐUR VERÐUR. EN ÞIÐ VITIÐ AÐ ÞETTA ER I KRINGUM 12.000 KRONURNAR !  ÚÚ SPENNÓ SPENNÓ !!

Þeir sem ætla að koma :
Freyja
Erla
Ragnheiður
Lára
Lísbet
Lena
Katrín
Valdís
Kristín
Aníta
Jóhanna
Bára?
Eva Laufey?
Regína?
Unnur?


SKRÁIÐ YKKUR OG LÁTIÐ OKKUR VITA !!

KNúses !!! :*

Tilhlökkunar kveðjur,,, og planarar

Freyja, Erla og Ragnheiður ;)
17. september 2008 klukkan 15:13
Jónatan
19 athugasemdir
08september

óvissuferđin!!

sælar jónatanar!

jæja ég er að blogga í leyfisleysi , en ég ætla að segja nokkur atriði um ferðina sem eru nauðsynjar

fyrst: 

  • það er að redda sér fríi yfir helgina 26-28 september!! og engar undanþágur
  • ferðin mun kosta 10-15 þús svo byrjið að spara! .. samt örugglega 10.000 frekar en 15 ;D
  • bílar ? við þurfum að fara  á bilum svo hverjir eru tilbúnir til að keyra ?? bensínið er innifalið í verðinu ;). þið fáið borgað fyrir að keyra
  • lagt verður af stað klukkan 3 á föstudegi svo þið þurfið að pakka á fimmtudegi
  • það verður ógeðslega gaman í ferðinni og edrúmennska er í fyrirrúmi, það verður ekkert áfengi með í för, þetta er þannig ferð
  • þeir sem eru ekki tilbúnir að standast þetta eru velkomnir að ræða við okkur, og endilega ekki koma með ef ykkur langar ekki að eiga skemmtulegustu helgi ársins ;)

en svo við komum nú að öðru efni þá langar ykkur í svona jónatan peysur eða boli? erum búnar að grennlast fyrir og peysa kostar 3500 með tveimur merkingum stórum. kannski eilítið ódýrara :D .. annas fá þið derhufur og penna ef þið viljið þetta ekki ;O) 


kær skemmtanakveðja 
the dark! and the clean and the thong ;* múha







 

08. september 2008 klukkan 14:11
Jónatan
6 athugasemdir
26ágúst

TILKYNNING PÖLLUR !!

Jæja elsku dömur ..

Núna er skólinn byrjaður, og síðasta, eða næstsíðasta önn okkar flestra að renna í garð ! Skólabækur munu eiga hug okkar flestra næsta mánuðinn og svona skemmtilegheit..

Er þá ekki kominn tími til þess að við látum LOKSINS verða að veruleika að gera það sem við höfum rætt, en aldrei gert síðan í bústaðaferðinni okkar góðu fyrir 2árum ?? Lyfta okkur svoldið upp og sjeika okkur svoldið saman oog...

fara í óvissuferð !!! ;)

Það er alveg kominn góður tími á okkur stöllur að láta verða að því.. Við erum tilbúnar að plana og skipuleggja og verður þetta fyrir jólin og liklega bara sem fyrst , þið eigið auðvitað að koma með tillögur um tíma og hvaða ´timar henta ekki.. því auðvitað ÆTLUM VIÐ ALLAR SAMAN Í Jónatan ! Þetta verður bara gleði og gleði út í gegn .. og sýnum landanum hvernig við Jónatana skagakonur skemmtum okkur !!!!

..En þetta mun auðvitað kosta eitthvern pening, þvi jafnvel gætum við gist eina nótt eithverstaðar í fjarska !

En HVAÐ SEGIÐI STELPUR !!! LÁTIÐ VITA SEM FYRST... ÞVÍ VIÐ ERUM ALVEG KOMNAR Í gírinn að byrja að plana !!



p.s áætlað er að fara á þessum bíl .. pan't ekki vera í skottinu !! ;)

Stemmara kveðjur, Erla og Freyja !

26. ágúst 2008 klukkan 20:36
Jónatan
21 athugasemd
19maí

pjásur

Vill bara biðja á að þakka ykkur fyrir frábæra elgi ! Þetta var rosa rosa gaman, þó svo að stuðið var dottið frekar snemma niður hjá okkur á föstudeginum.. ætli það hafi ekki verið potturinn sem gerði útslagið ! ;)
Annars já.. myndirnar eru með eitthvað bögg til að setja hérna inná (allavega hjá mér).
Þannig ég setti þær bara á myspace, þið vitið vonandi hvað það er (myspace.com/erla_d)
Vona að þið hinar farið að koma með myndiir líka!
Tökum fljótlega aftur eitthvað svona gaman .. Húbbahúlla !
 

Hafið það gott í sólinni.. 



Kveðja THONG!
19. maí 2008 klukkan 18:14
Jónatan
Engin athugasemd
08maí

bústađur?? :D

sælar sælar !

heyrðu ég var velta bústaðnum fyrir mér ! ;D .. þetta er helgina 16-17 er það ekki ? og hann er svínadal?? hvar annars þá ætti Kristín að svara þessu öllu því þad er hun sem er ad skipuleggja þetta klöppum fyrir henni !! :D:D

hverjir eru boðnir ?
ætla allir að koma á fös eða lau?
ætlum við að elda saman eða hver með sinn mat?


annnars hlakkar mig alveg ógurlega til að fara og gaman að hvað það eru margar sem ætla og eru spenntar !

þetta verður geggjað!!

kær kveðja
Freyja ;)
08. maí 2008 klukkan 15:48
Jónatan
16 athugasemdir
13mars

erum viđ alveg dauđar eđa?!

jæja stelpur?

Erum við alveg dauðar eða??

Hvernig væri nú að fara hrissta hópinn saman og gera eitthvað skemmtilegt?! ;) eitthverjar uppástungur??

við erum allar komnar bara útum allt!

Jónatan-heavy! :D

13. mars 2008 klukkan 19:43
Jónatan
3 athugasemdir
24desember

Gleđileg jól

Gleðileg Jól Jónatanarnir mínir ;*

Hafið það yndislegt um hátíðarnar, og njótum þess að borða á okkur gat af góða matnum á jólunum !

Sjáumst svo hressar og kátar og kílóbættar eftir jólin ;)



Erla Perla
24. desember 2007 klukkan 00:10
Jónatan
1 athugasemd
25nóvember

MYNDOS

Hæææ!

Í tilefni þess að ég hef ekkert getað sofið í alla nótt fyrir ofnæmisviðbrögðum þá ....

Setti ég inn fullt af myndum af okkur síðan í grunnskóla (þ.e.a.s. af Grundaskólaliðinu) inná netið!!

Jeeeeeij.

http://myspace.com/johannagisla

-Jóhanna

25. nóvember 2007 klukkan 06:11
Jónatan
3 athugasemdir

Auglýsing

Nýtt á Jónatan!

Kominn ný síđa međ myndböndum sem allir eiga ađ kíkja á! :D

Svo er búiđ ađ betrumbćta smá ţar sem stendur um okkur allar!

Könnun

Á ađ skella sér í bústađ í svínadal nćstu helgi??

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...