Fyrstu óvissuferðinni lokið!

jonatan-clean skrifar:
Jæja stelpur, þá er fyrsta óvissuferðin okkar búin! Að mínu mati heppnaðist hún bara stórkostlega og var bara frábær í alla staði! Þó svo að við hefðum lent í svona smá óvissum inni í óvissuferðinni, eins og að finna ekki bústaðinn og villast á leið í rafting og eitthvað, þá var það bara gaman þrátt fyrir allt :D

En mig langar svona endilega heyra hvað ykkur fannst um þetta, hvað var það besta, hvað hefði mátt betur fara og svona.. svona smá punkta fyrir þá sem plana eitthvað svona næst og hrós fyrir okkur þær sem plönuðum þetta ;) Skrifið það bara í komment!

Já og eitt í viðbót, þá vorum við þó nokkuð margar með myndavélar á lofti, og þó svo að þið setjið myndirnar ekki endilega hérna inná bloggið, þá megiði endilega segja í kommentum hvert þið setjið þessar flottu myndir af þessum líka föngulegu telpum :P

Samt svona fyrir aðra vandamenn sem hafa það að gamni sínu að skoða þessa skemmtilegu síðu okkar stelpna, þá var ferðin í stuttum orðum svona:

    -  Lögðum af stað um hálf 4 frá skólanum
    -  Fórum í magadans og lapdans hjá Jósý
    -  Fórum þaðan niður á tjörn og gáfum öndunum brauð og höfðum hópsöng
    -  Hittum þar reyndar eitthvað fólk sem var í ratleik, ein önnur óvissa í óvissunni
    -  Lyngdalsheiðin var brunuð á 120 km hraða upp í Úthlíð þar sem leiðin tók 4 klukkutíma!
    -  (frá því að við lögðum af stað frá Rvk. og fundum bústaðinn eftir miiiiklar leitir)
    -  Hjálpartækjakynning um kvöldið þar sem verslað var og verslað og auðvitað drukkinn bjór með
    -  Vaknað snemma í morgunsárið og lagt af stað um 1 leytið í RAFTING!
    -  Villtumst á leiðinni og komum tæpum klukkutíma og seint!
    -  Báturinn var nærri oltinn á einum stað!
    -  Galvaskar syntum við svo flestar í land, þannig við höfum synt í Hvítánni!

Allavega þakka ég fyrir mig stelpur mínar :*

En eitt hérna í bláendann, hvernig væri að fara að up-deita síðuna aðeins? Fara að breyta og bæta þarna um okkur allar, og finna nafn á Kristínu og bæta henni inn, fara að setja eitthvað skemmtilegt hérna inn, og fyrst og fremst eins og við Katrín vorum sammála um, að fara að virkja þetta blogg eitthvað betur?

Eeeendilega svarið í kommentunum góðu ;)

Clean-inn kveður :D
02. október 2008 klukkan 21:37
Jónatan
Rebekka skrifar ...
Miig langar að sjá myndir...!!!
OG að djamma
05. október 2008 klukkan 18:15
Erla Dröfn skrifar ...
Bara frábær ferð! Víhú.. enda heyrist mér verið að plana næstu óvissufer.. lýst bara vel á það ;-)
En Já, voru ALLAR með myndavel ! Og bara tvær búnnar að setja inn.. Drífa sig og endilega segja hvar þið settuð þær ;*
05. október 2008 klukkan 18:48
Erla Dröfn skrifar ...
Afsakið, NÆSTUM allar með myndavél..átti þetta að vera ;D
05. október 2008 klukkan 18:48
Regína skrifar ...
setja myndir hér inn! ég er ekki með myspace facebook eitthvað hvað þetta heitir allt saman:D
17. nóvember 2008 klukkan 19:05

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Nýtt á Jónatan!

Kominn ný síða með myndböndum sem allir eiga að kíkja á! :D

Svo er búið að betrumbæta smá þar sem stendur um okkur allar!

Könnun

Á að skella sér í bústað í svínadal næstu helgi??

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...