30október
Já góðir hálsar. Ég var að koma úr bústaðnum áðan svo ég ákvað að skella inn einu stykki langri ferðasögu
Föstudagur:
Við lögðum af stað um 6-leytið. Ég, Lísbet, Regína, Katrín, Freyja, Lára, Ylfa og Ragnheiður vorum í samfloti. Við vorum grínlaust svona 3 klukkutíma á leiðinni af því við fundum ekki Húsafell. Við hringdum allar í foreldra okkar og þeir sögðu okkur öllum eitthvað misjafnt. En svo hafðist þetta á endanum, enda vorum við með vasaljós ...

Við komum okkur fyrir og byrjuðum að elda. Svo komu Erla, Eva Laufey, Rakel Sif og Valdís. Þá vorum við bara 12 skvísur í afmælinu hjá þeim Ylfu, Ragnheiði og Freyju, sem blæddu í bústaðinn, matinn og bolluna.
Eftir matinn var potturinn bara of freistandi. Við vorum frekar margar ofaní honum, en þröngt mega sáttir sitja Sumir voru nú barasta ekkert með sundföt á meðan aðrir mættu með lager. Gaman að segja frá því að þegar við vorum á leiðinni í pottinn, komnar í sundfötin mættu bara allt í einu svona 10-15 strákar frá Borgarnesi. Við tókum inn allt áfengið og læstum þá úti. Valdís massi reddaði svo málunum, stökk út og rak þá heim. Hvernig hún fór að því, er svo önnur saga ..
Föstudagskvöldið var flott. Rakel Páls, Hrafnkell, Róbert Ket, Haddi, Valdi og Gummi litli bróðir hennar Evu mættu svo til að lífga uppá mannskapinn. Svo fóru bara flestir heim um 5-6 leytið um morguninn. Samt gistu það margir að ég neyddist til að sofa í sófanum, vel krumpuð.
Laugardagur:
Við vöknuðum á óguðlegum tíma um morguninn, þ.e.a.s. um 9-10. Við átum morgunmat og flestir héldu heim á leið. Eva, Erla, Haddi, Rakel og Katrín kvöddu okkur með tár í augum og verk í hjarta - og þá vorum við eftir 6.

Á laugardeginum var horft á morgunsjónvarp barnanna, enda rúv eina stöðin. Frábær þáttur, stundin okkar. Svo var bara endalaust tjill og heitur pottur. Fegurðarblundur tekinn fyrir kvöldmat og síðan þegar fór að líða á kvöldið fór fólkið að streyma. Katrín og Rósa kíktu í kvöldmat og síðan kom pabbi hennar Katrínar og fór með okkur í drykkjuleik. Algjör töffari kallinn. Ekki nema að það komu aftur einhverjr óboðnir Borgnesingar. Við læstum öllum hurðum, slöktum öll ljós og földum okkur inní herbergi. Engin Valdís, en samt sáu þeir sóma sinn í því að fara ...
Þetta hætti svo að vera pylsubrauðapartý þegar pylsurnar sjálfar mættu á svæðið. Rakel, Eydís, Róbert, Gummi og Valdi kíktu aðeins. Svo ákváðu Valur, Arnar og Halli borgnesingar að skella sér. Ég veit eiginlega ekki hvejir komu fleiri. Ég er ekki alveg inní þessum málum sko, enda þekki ég lítið til þarna í FVA. Veit samt að einn gaurinn sem kom var með járnplötur í andlitinu til að halda því saman. Regína kom við það.
Í morgun voru allir dauðþreyttir eftir helgina. Við vorum 7 sem tókum til. Algjörir massar skal ég ykkur segja. Hyrnan var svo nýtt á heimleiðinni og vorum við spurðar hvort við værum í 10 ára barnaafmæli, en hegðum okkar minnti víst manninn á það. Skil það sosum vel þar sem Lísbet var byrjuð að tala við blómin ...
Annar var þetta æðisleg ferð í alla staði og henni verður sko seint gleymt! Þakka ykkur kærlega fyrir Ragnheiður, Freyja og Ylfa afmælisbörn =*
,, Gegndu mér!! '' - Sagði Freyja við Ragnheiði ....
-Jóhanna, a.k.a Jónatan-White =*